09mars

9.mars 2009

Jájá ég veit að það er langt um liðið, enda búið að vera mikið að gera:)

Er byrjuð í dönskuskólanum 3x í viku, mánudaga og miðvikudaga frá 8-14 og föstudaga frá 11-14. Gengur bara svona ágætlega. Er í bekk með fólki frá Þýskalandi, Búlgaríu, Kína, Rúmeníu, Hollandi og Bandaríkjunum og Mexico. Gengur frekar illa að ná að segja R-in í dönskunni en það kemur bara með tímanum!
Er búin að skila nokkrum verkefnum og er bara búin að fá 12 fyrir verkefnin, en það er hæsta einkun sem maður getur fengið hérna í Dk. Fékk síðan 10 fyrir stæ próf sem ég tók:)

Síðasta einn og hálfan mánuðinn eða svo hef ég verið að fara til Horsens í nokkra daga í senn, kom einmitt heim í dag frá Horsens og var búin að vera þar alla helgina:)
Fór meðal annars að horfa á Rasmus og félaga spila og hjálpaði svo til við að losa hljómsveitarútuna eftir giggið og þrifum bílinn líka því það er víst búið að selja hann og kaupa stærri rútu sem þeir fá nú vonandi í hendurnar fyrir næstu helgi.
Talaði líka við ömmu Agnesi í símann.. alltaf gott að heyra í einhverjum að heiman!

Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn er fljótur að líða hérna!! Komnir meira en 2 mánuðir síðan ég kom og mér finnst það alveg stórskrítið að hafa ekki séð Mömmu, Pabba, Dódí, Helga, Nönnu og Árný ásamt öllum hinum í svona langann tíma!!

Svo er annað.. það gæti hugsast að ég sé komin með vinnu í ræktinni! Vona bara svo innilega að ég fái þessa vinnu því að þá verður allt svo miklu miklu einfaldara. Um leið og maður fer að fá danskann pening verður allt aðeins léttara. Kreppan er farin að segja sitt hérna í Danmörku, það er t.d. ekki verið að ráða mikið í verslanirnar hérna, þú þarft náttúrulega að vera menntaður frá Handleskolen til að vinna í búð! Þannig að það fólk er tekið fram yfir hina og þessvegna er ekki svo auðvelt að fá vinnu í verslunum hérna!

Við Rasmus sátum yfir sjónvarpinu í gærkvöldi áður en við fórum að sofa og þar var eitthvað stand up í gangi. Ég skildi nú ekki mikið í því hverju væri verið að gera grín af en ég skildi þó "brandarana" um Ísland og íslendinga.. mér fannst það ekki neitt rosalega fyndið en Rasmus skemmti sér alveg konunglega yfir þessu. Gott að einhverjir geti hlegið af Íslandi:P

Annars er það mál málanna og þau eru að ég er aftur að verða föðursystir!!! Helgi og Nanna eiga von á sér í sept.. nánar tiltekið 11.sept. Spenningur, Spenningur ;)

p.s. fer að henda inn myndum á facebookið og aldrei að vita nema maður hendi nokkrum hingað inn;)
-HallaTul
09. mars 2009 klukkan 19:04
Halla Tul
6 athugasemdir
07febrúar

Laugardagur 7.febrúar 2009

Ég hef nú ótrúlega lítið að segja í bili. Er búin að vera lasin í viku!!
Er búin að vera með hita, kvef, hósta, hausverk, beinverki, ógleði og eyrnaverki allt í bland. Ég gafst þó upp í gærkvöldi á eyrnaveseninu eftir að vera búin að eiga 2 andvökunætur í röð og vera frekar þreytt og pirruð. Ekki nóg með það að þetta sé einhver ógeðslegur eyrnaverkur heldur þá er ég búin að vera með svo miklar hellur að ég er búin að vera alveg heyrnalaus á öðru eyranu!! Svo fór þetta nú ekki að skána i gær þegar það byrjaði að leka úr eyranu á mér :/.
Ég hélt að þetta myndi bara líða hjá og ákvað að sofa með handklæði undir hausnum á mér og vona að þetta liði bara hjá. Í morgun þegar ég vaknaði þá var hellan horfin en kom um leið og ég stóð upp þannig að ég dreif mig til læknis einn tveir og þrír!
Læknirinn þurfti bara að líta í annað eyrað í rétt svo tvær sek. og sagði "þú ert með bullandi sýkingu og þarft að fara á sýklalyf í viku, 2 töflur kvölds og morgna." Ekki nóg með þessi sýklalyf heldur þarf ég líka að sofa SITJANDI!!! takk fyrir pent! Ákvað að halla/sitja mér aðeins þegar ég kom heim og var búin að taka tvær verkjatöflur og sýklalyfin, hristi koddana vel og setti þá uppvið vegginn og kom mér líka svona ægilega vel fyrir en vaknaði á svona korters fresti við það að ég lá hálf skökk að drepast í hálsinum og bakinu!!

En jæja nóg komið af væli, mamma fékk nú vænan skammt af því í dag og síðustu daga í símanum frá mér. Hringi heim til að fá smá vorkunn ehe.

Ég er búin að tala við skólann betur og fer í viðtalið á fimmtudag eða föstudag. Ég er að vinna í því að breyta ferilskránni minni svo ég geti farið að henda þeim inn á þessa og hina staði, það gengur bara ekkert alltof vel á meðan ég er hálf heyrnarlaus með hita og ógleði!
Stærðfræðin gengur rosalega vel og mér líkar alveg rosalega vel við þetta námsfyrirkomulag, skil allt miklu betur en síðast.

En jæja nóg af væli í augnablikinu, vona að ég verði aðeins hressari næst. Ég þarf víst að fara að taka sýklalyfin og reyna að borða eitthvað til að halda þeim niðri en það hefur reynst ansi erfitt hingað til :/

-HallaTul

07. febrúar 2009 klukkan 19:18
Halla Tul
7 athugasemdir
23janúar

23.janúar 2009

Já hann faðir minn heldur að ég sé með stelsýki eftir síðasta blogg, en ég get víst ekkert sagt.

Dagurinn í dag var nú heldur betur heilsuríkur á þessu heimili. Það var byrjað daginn á hafragraut með rúsinínum og mjólk og skellt sér svo í ræktina að hlaupa og púla á stigvélinni og tekið svo góðann tíma í að lyfta fyrir fætur og maga.
Eftir að hafa náð Úlla öskrandi úr leikherberginu var farið í sund. Sundlaugin var nú kanski ekki alveg sú besta fyrir litla kallinn, alveg ísköld og engir pottar. Greinilega notuð sem æfingar og kennslulaug fyrir sund. Þá fékk ég nú þá flugu í hausinn að láta mömmu troða sundbolnum mínum, gleraugunum og sundhettunni í umslag og senda mér!!Þá get ég synt svona 2-3x í viku, var komin ágætlega af stað aftur með Óðni en fór svo að vinna eins og hálviti!
En jæja, krakkinn var orðinn hel blár á vörunum og búinn að busla eins og ég veit ekki hvað og kafa og gaf ekkert eftir, hefur greynilega sundgenin frá honum afa Svabba, þannig að við drösluðumst úr lauginni og fórum á Beyglustað í miðbænum og keyptum beyglur.

Nú kemur smá pistill um þessar geðveiku beyglur!
Þú velur þér beyglur og getur valið úr ýmsu góðu eins og grófar, chilly & cheddar, fínar, með fræjum og fleira. Svo færðu að velja annað hvort hreinan rjómaost eða rjómaost með kryddi í. Svo veluru þér t.d. túnfisk, kjúkling, pylsur eða skinku. og svo læturu setja fullt af grænmeti og chedder ost og velur þér sósu.. beyglan er risastór og með öllu þessu jukkí í er þetta góð heil máltíð fyrir fullorðinn mann. Subway er algjört rusl miðað við þetta!
Úlfur Bjarni Tulinius borðaði hvorki meira né minna en heila beyglu þegar við komum heim!! Í sumar gat hann víst varla torgað hálfri, þetta er alveg keppnis!

Annars er voða lítið að frétta, er enn að bíða eftir að byrja í stærðfræðinni. Hún byrjar víst ekki fyrr en á mánudaginn og þetta gengur allt voðalega hægt með þennan dönskuskóla, fæ voðalega litlar upplýsingar!

Famílían hérna ætlar víst að fá sér sushi í tilefni bóndadagsins en ætli ég fari ekki og kaupi 2 aðrar beyglur til að jamla á í kvöld. Mér finnst sushi ekkert alltof girnilegt, tilhugsunin um að borða hráan fisk fer alveg með mig!

Á morgun ætla þau kanski að skella sér til århus, þá er ég að hugsa um að hoppa út í Horsens og eyða deginum þar:)

-HallaTul
23. janúar 2009 klukkan 16:48
Halla Tul
8 athugasemdir
19janúar

19.janúar 2009

Var að koma úr heljarinnar gönguferð útum allan bæ!
Byrjaði á því að fara í hraðbankann sem er hérna rétt hjá Falen, en nei, þegar ég kom í hraðbankann þá var hann OUT OF SERVIS!! ég þurfti því að labba upp í bæ til að fara í hraðbanka og aftur niður eftir hjá hinum hraðbankanum til að borga reikning!

Núna er ég s.s. búin að borga fyrir Dönskuskólann og bíð bara eftir því að fá sent bréf heim um það hvenar ég eigi að fara í viðtal og stöðupróf.
Tók líka þá ákvörðun í gærkvöldi þegar ég var að tala við mömmu í símann að skrá mig í fjarnám við FA. Síðasti dagur til skráningar í dag og ég sló bara á það og skráði mig í einn stæ áfanga. Áfanginn sem ég féll í eftir 2.bekk í MA. Byrja í honum 22.jan og er búin að redda stæ bókinni. Það er ekki kennd sama bók og ég var í í MA. Held að þessi sé aðeins auðveldari (þá meina ég fyrir svona stæ lúða eins og mig!)
Fjarnámið er s.s. um 12 vikur að mig minnir og prófin séu 4-14mai og ég get fengið að taka prófið hérna úti:) Vona bara svo innilega að ég geti klárað þetta og þá hef ég þann valmöguleika að fara aftur í MA og sleppa við sumarskóla:) Ég hlakka svo mikið til að fara að læra, bæði dönskuna og stærðfræðina! Alltof langt síðan maður hefur fengið að læra heima (ég trúi ekki að ég sé að segja þetta)... svo er bara að standa sig og markmiðið er sett á a.m.k. 11 klst á viku í stæ!
Er nú samt aðeins byrjuð í dönskunni bara sjálfstætt. Keypti mér tvær danskar bækur sem ég les í á kvöldin, 1kafli fyrir svefninn.

Svo er spurning um vinnu?? Kemur í ljós á næstu dögum hvort ég gæti mögulega fengið vinnu á ákveðnum stað, svona smá til að byrja með:) Allt voðalega spennandi:)


Smá kafli hérna handa Jóhönnu Klausen Gísladóttur:
Það er köngulóafaraldur hérna í Danmörku!! Eða dönunum finnst þetta nú bara eðlilegt en mér fannst nú heldur mikið um þetta þegar ég kom og þetta eru ekki litlar köngulær eins og heima. Fæturnir á þessum eru svona 10x stærri!!! Hérna hefuru það Nanna mín =/

Lennti líka í einu mjög skemmtilegu áðan þegar ég var úti. Mamma fær örugglega hjartaáfall ef hún les þetta.
Ég var á gatnamótum og var stopp á rauðum kalli og þá kemur einhver ógeðslega sjúskaður kall labbandi að mér og fer að tala við mig. Ég var nú samt ekki að skilja kallinn því hann talaði svo bjagað, en það sem ég skildi var að hann var að betla af mér pening fyrir strætó og ég sagði bara nei við hann. Þá sýnir hann mér poka með einhverju dufti í og spyr hvort ég vilji kaupa!! Ég hélt nú ekki og strunsaði í burtu!!

En á þessu strunsi mínu lennti ég á útsölu í Intersport og fann mér íþróttatösku, því gáfnaljósið ég ákvað að taka bara veski með mér hingað og aðstaðan í ræktinni er svo góð að ég bara VERÐ að notfæra mér hana og ef þið þekkið mig rétt þá labba ég sko ekki inn með fötin mín í plastpoka merktum BILKA eða FODTEX haha;)

Skemmtileg saga úr Bilka. Við Dóri fórum í Bilka í síðustu viku og ég sá svona gráar Champion íþróttabuxur á útsölu á 199 kr. Ég ákvað að slá til því mig vantaði einhverjar svona íþróttabuxur því ég tók bara einar með mér. Þegar ég kom heim og var að fara yfir kvittunina þá sá ég að buxurnar höfðu ekki verið skannaðar inn!! Þannig að í rauninni þá borgaði ég ekki fyrir buxurnar  Embarassed En sénsinn að ég nenni að fara í verslunina og bíða í upplýsingum og reyna að útskýra þetta fyrir þeim!! Þetta er svo hjúmongos verslun og hún er ekki beinlínis í næsta nágrenni ég er ekki viss um að ég nái að útskýra þetta fyrir þeim. Þetta er kanski svolítið illa gert af mér, en þetta eru líka þeirra mistök.

Jæja þetta er svona það helsta sem hefur gerst hingað til. Ætla að henda í mig smá túnfisklasagne (túnfiskur, kotasæla og tómatar) og drífa mig í ræktina og ljós;)

-HallaTul
19. janúar 2009 klukkan 13:20
Halla Tul
3 athugasemdir
16janúar

16.janúar 2009

Allt að gerast. Ég er semsagt hálfnuð með jobbið að komast inn í þennan blessaða dönsku skóla! Fór á skrifstofuna í skólanum og ætlaði að skrá mig en neinei. Mér var sagt að ég þyrfti að hringja í jobcenter-ið og tala það við einhvern sem myndi svo senda mér gíróseðil í pósti. Þegar ég væri svo búin að greiða gíróseðilinn þá fengi ég bréf frá Sprogskolen sem myndi boða mig í viðtal og eftir viðtalið get ég hafið námið! Tekur allt sinn tíma!

Ég fór nú samt og reddaði mér korti í ræktina þannig að núna eyði ég tímanum þar á morgnanna og eftirmiðdaginn. Er líka búin að fara í 2 ljósatíma og komst að því að það er algjörlega tilgangslaust að vinna á sólbaðsstofu!
Hérna seturu bara pening í einhversskonar vél sem sýnir mínúturnar sem þú ert að kaupa. Setur t.d. 20 kr í og færð 8 mín. Svo ferðu inn og þrífur bekkinn og líka eftir notkun. Það eru bæði ljósabekkir í ræktinni og líka aðeins neðar hérna í götunni, helvíti gott!
Ræktin sem ég er í er í eigu Bjössa í World Class og lýtur bara mjög vel út. Inn af klefunum er einhversskonar spa þar sem er gufubað og heitur pottur og sjávarsalts pottur og ég veit ekki hvað og hvað. Er ekki ennþá búin að tékka það út afþví að ég gleymdi að taka með bikiní! Flott að taka fullt af skóm en gleyma bikiníinu. Það þýðir bara eitt, maður verður að kaupa sér nýtt ;)

Eitt sem ég hef pælt mikið í hérna. Það eru holur út um allan bæ þar sem að eru einhverjir grasfletir og ég fór mikið að pæla hvað þetta væri.. í ljós kom að þetta eru moldvörpuholur! Ég hef nú samt sem áður ekki rekist á neina einustu moldvörpu.

Við Dóri skelltum okkur í heljarinnar verslunarferð. Keyptum helling af kjúklingabringum, fisk, hrísgrjónum og skyr! Fórum svo á basarinn og keyptum grænmeti og ávexti. Fórum svo í Giganten og keyptum nýjan blandara og vigt! Átakið er komið 100% í gang og ekkert gefið eftir! Kvöldin eru erfiðust, þá yfirtekur nart tilfinninginn mann. Ég fann nú samt skrambi gott hrökkbrauð í Kiwi sem virðist nú samt ekki vera neitt neitt það er svo létt. en það er ágætt að fá sér eina svoleiðis þegar maður fær þörf fyrir að narta í eitthvað! Tala svo ekki um ávextina, ananasinn sem við keyptum er svo góður að ég hef bara aldrei smakkað svona góðan ananas. Kallarnir á basarinum skáru hann fyrir okkur í einhverri vél þannig að börkurinn fer af og kjarninn með en svo setja þeir ananasinn ásamt safa í dollu þannig að hann geymist mjög vel.

Í morgun var fengið sér hafragraut og epli og farið beint í ræktina og ljós á eftir og er stefnan svo tekin á kaffihús held ég. Dóri og Sunna eru í fríi í skólanum í dag. Sunna var að klára eitthvað svaðalegt próf og gekk alveg rosalega vel og fékk mjög fína einkun. Svo ætla þau skötuhjúin út að borða í kvöld og Didda og Úlli ætla að vera heima og hafa það kósý og fá sér eitthvað gott að borða;)

Ég er búin að reyna að setja myndir inn á bloggið en tekst það aldrei! Annað hvort er systemið svona slæmt eða ég svona tæknilega fötluð?

-HallaTul
16. janúar 2009 klukkan 11:32
Halla Tul
3 athugasemdir
09janúar

Kennitala og Lögheimili

Jæja þá er maður loksins kominn með kennitölu og lögheimili hér í Danmörku. Þeir sem vilja senda mér eitthvað fallegt þá er heimilisfangið:

Falen 50F 5000 Odense C

Kíkkti aðeins í Rosengårdsentret í gær. Útsölur út um allt. 50-70% afsláttur í flestum búðunum. Ég var nú samt alveg ótrúlega þæg og eyddi aðeins 74 kr sem er mikil framför hjá mér!
Ég athugaði líka með líkamsræktarstöðvar hérna. Alveg ótrúlegt system hjá þeim. Það er ekki hægt að fá frían prufutíma hjá mörgum stöðvum. Maður getur fengið "frían" prufutíma hjá þeim en maður þarf að borga 99 kr fyrir hann og skrifa svo undir samning og eitthvað. Ég veit að vísu um eina stöð þar sem að er hægt að fá prufutíma en maður þarf að skrá sig eitthvað á netinu til að komast í hann. svo er ekki hægt að kaupa stakann tíma, bara mánuð og hann kostar 10 þúsund ísl kr. Þá kýs ég nú frekar að fara út að hlaupa, það er stór garður hérna beint á móti íbúðinni sem er fínt að hlaupa í. Garðurinn er nú samt frekar spes þar sem að þetta er kirkjugarður! En hver segir að það sé bannað að hlaupa í kirkjugarði! Maður kaupir sér nú bara kort í ræktina þegar/ef maður fær vinnu og fær danskar krónur, þá er þetta nú lítið mál.
Kíkktum líka aðeins í Genbrug og keyptum þessa dýrindis skóhillu þannig að nú liggja ekki skór út um alla forstofuna og nei það voru ekki allt skór sem ég á!!! Ég tók nú bara 7 pör með mér og þau eru öll í fataskápnum mínum nema skórnir sem ég nota oftast!

Ég hef ekki ennþá lagt í það að fara á hjóli eitthvert. Ótrúlegt hvað bílarnir keyra nálagt fólki þegar það hjólar og það eru spes hjólagötur og umferðarljós fyrir hjólafólkið þannig að maður hjólar bara með umferðinni! Ég ætla nú ekki að byrja á því að láta keyra mig niður hérna.

Annars er búið að vera alveg rosalega kalt hérna. Snjór og -7°C en það er búið að hitna talsvert og snjórinn farinn.

Vaknaði klukkan 5 í morgun og þá var Úlli kominn með ælupesti. Hann er nú allur að hressast núna sem betur fer. En það þýðir nú lítið að hanga inni allan daginn, klukkan orðin rúmlega 14 og maður er ekki búin að gera neitt af viti! Ég ætla því að eyða restinni af deginum í það að rölta í miðbæjinn og skoða mig um þar og kanski kíkja á pínu fleiri udsalger og fara í matarbúðHalla og Inga.

P.s. Eins gott að Helgi, Nanna og Árný hugsi vel um Dódí og Rolluna fyrir mig;)
-HallaTul
09. janúar 2009 klukkan 13:09
Halla Tul
6 athugasemdir
05janúar

Danmörk

Jæja ferðin gekk ágætlega. Svaf í hálftíma til klukkutíma áður en ég þurfti að vakna í flugið. Var mætt á Keflavíkurflugvöll uppúr hálf 6 um morguninn. Beið svo í um það bil einn og hálfan tíma á Kastrup eftir Dóra en hann var í flugi á eftir mér. Tókum svo lestina til Odense og taxa heim. Vorum heldur þreytt og illa sofin þannig að það var ákveðið að fara strax og kaupa eitthvað að borða. Keyptum okkur pizzu á pizzapizza. Ég hef aldrei séð jafn stóra pizzu á ævinni!! Þetta var örugglega 32" pizza! hendi myndum inn bráðlega.

Eftir matinn var hent sér upp í sófa og fór svo upp í rúm um 8 leytið og svaf til 4 í dag! Fyrsti dagurinn hófs s.s. mjög vel! Er lítið annað búin að gera en að sofa og horfa á sjónvarpið. Lagaði svo að vísu aðeins til áðan.

Sunna og Úlfur koma svo á morgun.

Það byrjaði að snjóa í gærkvöldi og það er ekkert smá kalt hérna núna. Fínt veður samt núna.. frost, snjór og alveg logn og heiðskýr himinn.
Spurning um að fara að rölta í Kiwi og kaupa eitthvað í kvöldmatinn og morgunmatinn:)

-HallaTul
05. janúar 2009 klukkan 17:18
Halla Tul
2 athugasemdir
03janúar

Bless Bless

Þá er komið að kveðjustund.

Áramótin voru heldur betur frábær. Maturinn í Birkilundinum var alveg hreint geðveikur! Tveir 7 kg kalkúnar ala Didda frænka og Pabbi takk fyrir pent!

Ég fór svo til Huldu systur Ingu og Lindu og fagnaði nýja árinu með fjölskyldunni þeirra ásamt Tinnu Ósk. Við stelpurnar héldum svo til Hildar og fórum þaðan á Palla í Sjallann og á Kaffi Akureyri. Kvöldinu lauk nú samt frekar snemma miðað við opnunartímann. Ég var komin heim milli 5 og 6 og þá voru þau gömlu ný farin að sofa.

Í gærkvöldi var svo smá matarboð í Dalsgerðinni hjá Kalla frænda. Dýrindis Greifapizzur þar. Svo var hitt stelpurnar og kvatt þær rækilega. Kláraði að pakka í nótt um 3 leytið!! Alltaf þarf ég að geyma allt fram á síðustu stundu!


Nú eru allir farnir að reka á eftir mér.. erum að fara að leggja í hann suður og svo er flugið út klukkan 7.15 í fyrramálið, mæting á völlinn 05.00 takk fyrir pent.
Svo er bara Falen og taka upp úr töskum!!

Þangað til næst.
-HallaTul
03. janúar 2009 klukkan 13:30
Halla Tul
2 athugasemdir
29desember

6 dagar í brottför

Gleðileg jól allir saman.
Jólin hafa aðallega einkennst af of miklu áti!! Ég er komin með strengi í magann af öllum þessum mat sem maður fær yfir hátíðina!

6 Dagar í brottför og ég fór loksins að byrja á því að koma öllu á hreint áður en ég fer út. Eyddi rúmum klukkutíma í bankanum hjá þjónustufulltrúa til að koma öllu þar á hreint og þarf síðan að fara aftur í bankann á morgun og líklegast aftur á föstudaginn!!
Tókst líka að fara í Benetton að eyða jólagjöfinni minni frá vinnunni:).. Fékk pils og tvenna fína boli þar:)
Er búin að fá myndavél svo hægt verði að festa eitthvað á myndir þarna úti. Helgi bróðir ætlar að fá Rolluna og hugsa vel um hana, í staðinn fékk ég eina af þremur myndavélum sem þau Nanna eiga og fæ bara að eiga hana, einhverskonar leiga fyrir bílnum;)

Gerði heljarinnar lista sem þarf að hrinda í framkvæmd á morgun. Planið byrjar klukkan 8.15 en þá þarf að fara og þrífa bílinn að utan og innan. Eftir það þarf að hringja í dokksa, tala við skattinn, þvo óendanlega mikið af þvotti, fara AFTUR í bankann og ná í gjaldeyri og byrja að pakka niður. Þetta á eftir að verða alveg heljarinnar dagur!!

Áramótin eru á næsta leyti, vona að við stelpurnar getum skemmt okkur vel þar sem að leiðir fara að skiljast. María og Linda fluttar suður og ég á leiðinni til Danmerkur. Helgi og Nanna fara austur í fyrramálið, það verður nú svolítið skrítið að hafa engann Helga og enga Nönnu.

Þangað til næst,
HallaTul
29. desember 2008 klukkan 22:50
Halla Tul
2 athugasemdir
16desember

Halla er mætt á nýjann leik

Jæja ég ákvað að bregða til þess ráðs að byrja að blogga aftur. Aðal ástæðan er sú að von bráðar eða eftir 19 daga mun ég leggja af stað til Danmerkur og vera þar í óákveðinn tíma og til að leyfa vinum og vandamönnum er fátt sniðugra en að halda uppi smá bloggi á veraldarvefnum.

Ég s.s. sótti um í skóla í Danmörku og eftir langa, mjög svo langa bið þá fékk ég símtal frá einhverjum baunverja sem sagði að ég væri komin inn í skólann og það eina sem ég þurfti að gera væri að borga staðfestingargjald.
Staðfestingargjaldið var nú samt sem áður búið að hækka úr rúmum 50 þús ísl.kr í tæpar 100-120 þús ísl.kr. þá átti eftir að borga heimavist og efniskostnað við námið.
Mér leist ekki alveg á blikuna og sá ekki fram á það að geta farið í skólann, en þar sem að ég var búin að kaupa mér flugmálið, hætta í skólanum og vinna í 4 mánuði ákvað ég að láta þetta ekki eyðileggja neitt fyrir mér!

Planið hefur s.s. breyst heldur mikið! Núna er stefnan tekin á það að fara til Danaveldis, verð að leigja hjá Dóra og Sunnu og Úlla "litla", finn mér vinnu (skóverslun eða veitingarhús býst ég við) og ætla að skrá mig í smá dönskuskóla til að tala eins og sannur baunverji! Svo sér maður bara til hvort að efnahagsástandið batnar eitthvað því varla fer það að versna núna!

13 vinnudagar eftir býst ég við, þar af þrjár vaktir á greifanum!
Dóri ofurhetja baunverja kemur heim eftir 3 daga með familíuna.
8 Dagar í jólin, en það verður líklegast laaaangur tími þangað til að fjölskyldan hittist öll aftur!Á morgun byrjar 10-22 opnun á Glerártorgi og ég verð þar alla daga og plús 3 vaktir um helgina á Greifanum, nóg að gera!

Jæja þetta er allavega það sem er að fara að gerast, svona í grófum dráttum!
Þangað til næst.
-HallaTul

16. desember 2008 klukkan 22:41
Halla Tul
2 athugasemdir

Aðalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Halla Tul
  • Netfang: heilei_the_peilei@hotmail.com
  • Staður: Akureyri
  • Hjúskaparstaða: I sambandi
  • Um mig: Ég heiti Halla Tul og er 18ára. Bý í Odense í Danmörku en kem frá Akureyri.
  • Annað: www.myspace.com/hallatul

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...